Boðað er til aðalfundar Samtaka sjávarútsvegssveitarfélaga miðvikudaginn 7. október í sal á 2. hæð Hilton Reykjavík kl. 13:00-14:30.
Aðalfund skal halda í september- eða októbermánuði annað hvert ár og skal haldið á sléttum ártölum. Kjörgengir á aðalfund SS og í stjórn samtakanna eru kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga og starfsmenn þeirra Öll aðildarsveitarfélög hafa seturétt á aðalfundi og velja þau fulltrúa með atkvæðisrétt á aðalfund. Hvert sveitarfélag hefur eitt atkvæði við atkvæðagreiðslur en allir þingfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt.
Fundargögn verður að finna hér neðst á síðunni. Boðið verður upp á hádegisverð fyrir fund milli 12:30-13:00.
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar,
- Ársreikningur samtakanna,
- starfs- og fjárhagsáætlun samtakanna ásamt ákvörðun um árgjöld og þóknun stjórnar,
- lagabreytingar (stjórn mun ekki leggja til lagabreytingar),
- kosning formanns stjórnar, annarra stjórnarmenn (fjórir stjórnarmenn) og varastjórnar (þrír varamenn) til tveggja ára
- kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara
- mál sem stjórn samtakanna, einstakir fulltrúar eða sveitarstjórnir óska að tekin verði fyrir.
- Ávörp gesta
Þau sem hafa áhuga á að sitja í stjórn samtakanna eru hvött til að senda póst á starfsmann samtakanna, Bryndísi Gunnlaugsdóttur, á netfangið bryndis@samband.is

