Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimildir), 529. mál.
Á fundi stjórnar þann 8. apríl var eftirfarandi bókað:
Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga gerir athugasemdir við að lagafrumvörp og reglugerðarbreytingar sem varða verulega hagsmuni sveitarfélaga skuli koma fram án þess að fara fyrst í formlegt samráð, s.s. í samráðsgátt stjórnvalda. Slík vinnubrögð draga úr gagnsæi og veikja möguleika sveitarfélaga og annarra hagaðila til að koma sjónarmiðum sínum að áður en ákvarðanir eru teknar.
Stjórnin leggur áherslu á að vandað, tímanlegt og raunverulegt samráð sé lykilforsenda vandaðrar lagasetningar og stjórnvaldsákvarðana.