Ályktanir aðalfundar um lagareldi og 5,3% kerfið

Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, sem haldinn var 7. október, samþykkti samhljóða tvær ályktanir um mikilvæg hagsmunamál sjávarútvegssveitarfélaga. Annars vegar er kallað eftir því að lokið verði án frekari tafa við nýja heildstæða lagaumgjörð um lagareldi og hins vegar lýst þungum áhyggjum af breytingum og áformum varðandi ráðstöfun aflaheimilda 5,3% kerfisins.

Í ályktun um lagareldi er lögð áhersla á skýrt og fyrirsjáanlegt regluverk sem styðji við ábyrga uppbyggingu og verðmætasköpun. Sérstök áhersla er lögð á að nærsamfélög, sem bera kostnað af innviðum og þjónustu, njóti sanngjarnrar hlutdeildar í þeim verðmætum sem starfsemin skapar og að sveitarfélög hafi raunverulega aðkomu að stefnumótun og ákvörðunum um þróun greinarinnar.

Í ályktun um 5,3% kerfið er lögð áhersla á að aflaheimildir kerfisins styðji atvinnu og byggð, meðal annars með staðbundinni verðmætasköpun og heilsársstörfum. Sveitarfélögin lýsa þungum áhyggjum af skerðingum á línuívilnun og rækju- og skelbótum og kalla eftir því að breytingar á kerfinu verði unnar í nánu samráði við sveitarfélögin.

Ályktun um lagareldi

„Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga hvetur ríkisstjórn og Alþingi til að ljúka án frekari tafa vinnu við nýja heildstæða lagaumgjörð um lagareldi.

Núverandi lagaumhverfi einkennist af óvissu sem getur hamlað fjárfestingu, dregið úr samkeppnishæfni greinarinnar og tafið mikilvæga atvinnu- og byggðaþróun.

Á síðasta löggjafarþingi var lagt fram frumvarp til laga um lagareldi sem byggði á umfangsmikilli vinnu stjórnvalda, Alþingis, sveitarfélaga, atvinnulífs og annarra hagaðila. Mikilvægt er að þeirri vinnu verði fylgt eftir og skapaður traustur og fyrirsjáanlegur lagagrundvöllur til framtíðar.

Aðalfundurinn leggur áherslu á að ný lagaumgjörð:

  • styðji við ábyrga uppbyggingu og verðmætasköpun í lagareldi,
  • skapi skýrar og fyrirsjáanlegar leikreglur fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila,
  • feli ekki í sér gjöld eða kvaðir sem hamla nauðsynlegri fjárfestingu og uppbyggingu,
  • tryggi að nærsamfélög sem bera kostnað af innviðum og þjónustu njóti sanngjarnrar hlutdeildar í þeim verðmætum sem starfsemin skapar,
  • byggist á bestu fáanlegu þekkingu, vöktun og mati á raunverulegum áhrifum starfseminnar, og
  • tryggi sveitarfélögum raunverulega aðkomu að stefnumótun og ákvörðunum sem varða þróun greinarinnar.

Aðalfundurinn telur það sameiginlegt hagsmunamál ríkis, sveitarfélaga, atvinnulífs og íbúa að skýr og traust lagaumgjörð um lagareldi verði sett hið fyrsta þannig að greinin geti áfram þróast með ábyrgum hætti, með umhverfisvernd að leiðarljósi og til hagsbóta fyrir þau samfélög sem á henni byggja.“ [Sjávarútve…nktar.docx | Word]

Ályktun um 5,3% kerfið

„Aflaheimildir 5,3% kerfisins eiga að styðja atvinnu og byggð með áherslu á staðbundna verðmætasköpun, fjölbreytni í útgerð og vinnslu og heilsársstörf.

Sveitarfélögin lýsa þungum áhyggjum af breytingum og áformum innviðaráðherra, einkum skerðingum á línuívilnun og rækju- og skelbótum, sem veikja atvinnugrundvöll og skerða tekjur sveitarfélaga og hafna.

Sveitarfélögin skora á ráðherra að endurskoða breytingarnar og áformin með hliðsjón af framangreindum markmiðum og vinna að frekari breytingum á ráðstöfun 5,3% heimildanna í nánu samráði við sveitarfélögin.“

Ný stjórn kjörin á aðalfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga var haldinn 7. október 2026 á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum voru meðal annars flutt skýrsla stjórnar og ávarp atvinnuvegaráðherra, ársreikningar samþykktir, starfs- og fjárhagsáætlun afgreidd og stjórn samtakanna kjörin til næstu tveggja ára.

Íris Róbertsdóttir endurkjörin formaður

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, var endurkjörin formaður samtakanna. Með henni í aðalstjórn voru kjörin Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir frá Dalvíkurbyggð, Gerður Björk Sveinsdóttir frá Vesturbyggð, Heimir Örn Árnason frá Akureyrarbæ og Ragnar Sigurðsson frá Fjarðabyggð.

Í varastjórn voru kjörin Alexandra Jóhannesdóttir frá Suðurnesjabæ, Gylfi Ólafsson frá Ísafjarðarbæ og Hjalti Þór Vignisson frá Sveitarfélaginu Hornafirði. Tillagan um skipan stjórnar og varastjórnar var samþykkt samhljóða.

Umfangsmikil hagsmunagæsla

Í skýrslu stjórnar fór Íris Róbertsdóttir yfir umfangsmikla hagsmunagæslu samtakanna á liðnu tímabili. Þar bar hæst vinnu vegna hækkunar veiðigjalda, en samtökin lögðu meðal annars áherslu á betra samráð, vandaðri gögn og mat á áhrifum breytinganna á sjávarútvegssveitarfélög. Meðal annarra áherslumála samtakanna hafa verið fyrirsjáanleiki við úthlutun byggðakvóta og strandveiðar, endurskoðun gjaldskrárákvæða hafnalaga vegna lagareldis, hófleg skattlagning sjávarútvegs og fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga til uppbyggingar innviða.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, ávarpaði fundinn og ræddi meðal annars veiðigjöld, lagareldi, þörungarækt og mikilvægi samráðs við sveitarfélögin. Hún sagði rödd samtakanna hafa haft raunveruleg áhrif við afgreiðslu veiðigjaldamálsins og óskaði eftir góðu samstarfi við sveitarfélögin við fyrirhugað mat á áhrifum gjaldanna.

Ársreikningar samtakanna fyrir árin 2024 og 2025 voru samþykktir samhljóða. Fundurinn samþykkti jafnframt starfs- og fjárhagsáætlun, hækkun aðildargjalda og óbreytt stjórnarlaun.

Aðalfundurinn samþykkti að lokum samhljóða tvær ályktanir. Önnur þeirra fjallar um nauðsyn nýrrar heildstæðrar lagaumgjarðar um lagareldi og hin um ráðstöfun aflaheimilda 5,3% kerfisins og áhrif fyrirhugaðra breytinga á sjávarbyggðir.

Boðað til aðalfundar 7. október kl.13:00

Boðað er til aðalfundar Samtaka sjávarútsvegssveitarfélaga miðvikudaginn 7. október í sal á 2. hæð Hilton Reykjavík kl. 13:00-14:30.

Aðalfund skal halda í september- eða októbermánuði annað hvert ár og skal haldið á sléttum ártölum. Kjörgengir á aðalfund SS og í stjórn samtakanna eru kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga og starfsmenn þeirra Öll aðildarsveitarfélög hafa seturétt á aðalfundi og velja þau fulltrúa með atkvæðisrétt á aðalfund. Hvert sveitarfélag hefur eitt atkvæði við atkvæðagreiðslur en allir þingfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt.

Fundargögn verður að finna hér neðst á síðunni. Boðið verður upp á hádegisverð fyrir fund milli 12:30-13:00.

Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar,
  2. Ársreikningur samtakanna,
  3. starfs- og fjárhagsáætlun samtakanna ásamt ákvörðun um árgjöld og þóknun stjórnar,
  4. lagabreytingar (stjórn mun ekki leggja til lagabreytingar),
  5. kosning formanns stjórnar, annarra stjórnarmenn (fjórir stjórnarmenn) og varastjórnar (þrír varamenn) til tveggja ára
  6. kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara
  7. mál sem stjórn samtakanna, einstakir fulltrúar eða sveitarstjórnir óska að tekin verði fyrir.
  8. Ávörp gesta

Þau sem hafa áhuga á að sitja í stjórn samtakanna eru hvött til að senda póst á starfsmann samtakanna, Bryndísi Gunnlaugsdóttur, á netfangið bryndis@samband.is

Góðar umræður á Sjávarútvegsfundi

Á opnum fundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga í morgun var fjallað um fyrirhugaðar lagabreytingar vegna lagareldis, stöðu byggða og uppbyggingu lykilinnviða víða um land. Fundurinn sýndi glögglega mikilvægi þess að samræma hagsmuni atvinnulífs, sveitarfélaga og umhverfis.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, kynnti væntanlegt lagareldisumvarp þar sem lögð er áhersla á að skýra regluverk, draga úr óvissu og sameina leyfisveitingar í eitt rekstrarleyfi til að auka skilvirkni og bæta umhverfisvernd.

Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnamála hjá Vegagerðinni, benti á mikla fjárfestingaþörf hafna meðal annars vegna skemmtiferðaskipa, fiskeldis og aukinna öryggiskrafna, auk þess sem margar hafnir glíma við fjárhagslega þrengingu.

Sigurður Árnason, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, fór yfir stöðu byggða og undirstrikaði að einhæft atvinnulíf auki brothættni og að stuðningskerfi þurfi að taka mið af raunverulegri stöðu einstakra byggðarlaga.

Í pallborðsumræðum lýstu fulltrúar sveitarfélaga áhyggjum af hækkandi gjöldum, flutningskostnaði og ófyrirséðum breytingum sem gætu haft áhrif á tekjur og atvinnu í sjávarbyggðum. Einnig komu fram góðar ábendingar um mikilvægi hafnabótasjóðs og nauðsyn þess að hækka framlög til sjóðsins.

Yfirlýsing frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Þann 12. júlí 2025 sendi stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir vonbrigðum með hve litlar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpi til laga um breytingu á veiðigjöldum, þótt vissulega hafi verið tekin jákvæð skref í meðförum atvinnuveganefndar í kjölfar málefnalegra samskipta samtakanna við nefndina og ráðherra. Má þar tiltaka hækkun hins svokallaða frítekjumarks, þrepaskiptingu hækkana veiðigjalda og fyrirhugað áhrifamat gjaldahækkana á stöðu sjávarútvegssveitarfélaga – sem samtökin hafa lagt mikla áherslu á.


Að óbreyttu er þó ljóst að hækkun veiðigjalda mun áfram bitna að langstærstu leyti á samfélögum á landsbyggðinni þar sem sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu. Verulegar líkur eru á að hún komi harðast niður á smáum og meðalstórum útgerðum sem mun leiða til fækkunar starfandi fyrirtækja í greininni, enn frekari samþjöppunar aflaheimilda og að starfsemi fiskvinnsla leggist af í ákveðnum byggðarlögum.


Jákvæðu skrefin eru því að mati samtakanna of lítil og of fá, hækkunina á að innleiða mjög hratt, gjald á ákveðnar fisktegundir er illa ígrundað, áhrifamat mun liggja of seint fyrir og ekkert endurskoðunarákvæði er að finna í nýjum breytingartillögum meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis.
Skynsamlegt hefði verið að mati samtakanna að fresta málinu til haustsins og hraða áhrifamati fyrirhugaðra breytinga á stöðu sjávarútvegssveitarfélaga og mati á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög landsins í samræmi við sveitarstjórnarlög. Með því móti væri unnt að leggja fram vandaðra frumvarp með skynsamlegri innleiðingu hækkana á veiðigjöldum án þess að tefla framtíð einstakra byggðarlaga í tvísýnu.


Samtök sjávarútvegssveitarfélaga hvetja Alþingi til þess að hafa hagsmuni 80 þúsund íbúa í þessum sveitarfélögum til hliðsjónar þegar unnið er að breytingum á löggjöfinni.

Yfirlýsing stjórnar vegna frumvarps um hækkun veiðigjalda

Fyrr í dag gaf stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá sér yfirlýsingu vegna frumvarps um hækkun veiðigjalda. Yfirlýsingin hefur verið send til forsætisráðherra, atvinnuvegaráðherra, fjármálaráðherra og atvinnuveganefndar Alþingis.

Yfirlýsing stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga er eftirfarandi:

Samtök sjávarútvegssveitarfélaga ítreka afstöðu sína og hvatningu til Alþingis um að tekið sé tillit til þeirra athugasemda og þeirra áhyggja sem samtökin hafa komið á fram færi við atvinnuvegaráðherra, forsætisráðherra, fjármálaráðherra, atvinnuveganefnd og þingmenn. Samtökin hvetja þessa aðila til þess að hafa hagsmuni almennings í þessum sveitarfélögum til hliðsjónar þegar unnið er að breytingum á löggjöfinni.

Það er allra hagur að gögn og greiningar til að undirbyggja mat á áhrifum frumvarpsins á afkomu fyrirtækja og sveitarfélög landsins séu aðgengileg og að vandað sé til allra verka. Ekki aðeins er um að ræða hækkun á stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins heldur er ljóst að hækkunin nær til hundruða annarra fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi, einyrkja sem lítilla fjölskyldufyrirtækja. Verulegar líkur eru á að hækkun veiðigjalds leiði til aukinnar samþjöppunar fyrirtækja í sjávarútvegi og að starfsemi fiskvinnsla leggist af í ákveðnum byggðarlögum. Nauðsynlegt að áhrifamat sé gert svo að hagaðilar eins og sveitarfélög landsins, sem mörg hver byggja afkomu sína að verulegu leyti á íslenskum sjávarútvegi, geti metið bein og óbein áhrif frumvarpsins, s.s. á útsvarstekjur, tekjur vegna umsvifa í starfsemi hafna, stoðgreinar og nýsköpun.

Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir ánægju sinni með að atvinnuveganefnd Alþingis hafi unnið að jákvæðum breytingum á frumvarpinu sem varða hækkun svokallaðs frítekjumarks en ljóst er að vinna þarf málið betur á grundvelli nýrra gagna, uppfæra greiningar og vinna víðtækara áhrifamat, m.a. fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög landsins í samræmi við sveitarstjórnarlög. Við blasir að nauðsynlegt er  bæta úr þeim annmörkum sem í ljós hafa komið m.a. varðandi gjald á ákveðnar tegundir. Samtökin lýsa enn yfir vilja sínum til að hækkun veiðileyfagjalda verði innleidd í þrepum. 

Bókun stjórnar vegna frumvarps um hækkun veiðigjalda

Á stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:

„Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir furðu sinni á tregðu stjórnvalda til að veita aðgang að lykilgögnum sem varpa ljósi á raunveruleg áhrif frumvarps til laga um breytingu á veiðigjöldum en beiðni um upplýsingar frá Skattinum liggur fyrir frá samtökunum í atvinnuvegaráðuneytinu. Það er allra hagur að gögn og greiningar til að undirbyggja mat á áhrifum frumvarpsins á afkomu fyrirtækja og sveitarfélög landsins séu aðgengileg og að vandað sé til allra verka. Það er því bagalegt að samtökin hafi þurft að leita til milliliða til að nálgast gögn svo hægt sé að uppfæra greiningar á áhrifamati.

Fyrir liggur að grunnútreikningar Skattsins á hækkun veiðileyfagjalds leiða í ljós að fyrri útreikningar atvinnuvegaráðuneytisins á hækkun veiðileyfagjalds hafa verið verulega vanáætlaðir. Nær öll hækkunin leggst á landsbyggðirnar og með enn meiri þunga en áður var ætlað. Ekki aðeins er um að ræða hækkun á stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins heldur er ljóst að hækkunin nær til hundruða annarra fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi, einyrkja sem lítilla fjölskyldufyrirtækja. Verulegar líkur eru á að hækkun veiðigjalds leiði til aukinnar samþjöppunar fyrirtækja í sjávarútvegi og að starfsemi fiskvinnsla leggist af í ákveðnum byggðarlögum. Nauðsynlegt er því að gögn Skattsins verði gerð aðgengileg þannig að þingmenn og hagaðilar eins og sveitarfélög landsins, sem mörg hver byggja afkomu sína að verulegu leyti á íslenskum sjávarútvegi, geti metið bein og óbein áhrif frumvarpsins, s.s. á útsvarstekjur, tekjur vegna umsvifa í starfsemi hafna, stoðgreinar og nýsköpun.

Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir ánægju sinni með að atvinnuveganefnd Alþingis hafi unnið að jákvæðum breytingum á frumvarpinu sem varða hækkun svokallaðs frítekjumarks en ljóst er að vinna þarf málið betur á grundvelli nýrra gagna, uppfæra greiningar og vinna víðtækara áhrifamat, m.a. fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög landsins í samræmi við sveitarstjórnarlög. Við blasir að nauðsynlegt er að taka frumvarpið aftur til meðferðar og bæta úr þeim annmörkum sem í ljós hafa komið. Samtökin lýsa enn yfir vilja sínum til að hækkun veiðileyfagjalda verði innleidd í þrepum.

Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga hvetur Alþingi og ríkisstjórn Íslands til að standa með almannahagsmunum og taka tillit til málefnalegra athugasemda samtakanna.“

Stjórn samtakanna fól KPMG að uppfæra ákveðin atriði í fyrri greiningu þeirra fyrir samtökin í samræmi við breytingartillögur meiri hluta atvinnuveganefndar Alþingis. Nálgast má uppfærð gögn KPMG hér.

Umsögn vegna frumvarps um hækkun veiðigjalda

Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga skilaði inn til atvinnuveganefndar Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald nr. 145/2018. Með frumvarpinu er lagt til að hækka veiðigjöld.

Stjórn samtakanna lagði til að farið sé í vandaða greiningu á áhrifum hækkunar veiðigjalda á byggðarlög og minni skref verði stigin við innleiðingu hækkunar veiðigjalda.

Með umsögn samtakanna fylgdi greining KPMG ásamt kynningu á umsögn samtakanna.

Hér er hægt að nálgast öll gögnin.

Fundur með þingmönnum um áhrif væntanlegrar hækkunar veiðigjalda

Síðasta föstudag héldu Samtök sjávarútvegssveitarfélaga fund með þingmönnum vegna fyrirhugaðrar hækkunar veiðigjalda. Á fundinum voru kynnt drög að umsögn samtakanna um frumvarpið, sem og drög að greiningu KPMG á áhrifum þess á sveitarfélög sem reiða sig að miklu leyti á sjávarútveg.

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki við að gæta staðbundinna almannahagsmuna og tryggja að ákvarðanir ríkisvaldsins taki mið af áhrifum á íbúa, atvinnulíf og byggðaþróun. Samtökin lögðu á fundinum áherslu á að með hækkun á veiðigjaldi sé enn hert á kröfunni um hagræðingu í greininni og að slíkar breytingar geti haft veruleg áhrif á atvinnu og afkomu í sjávarútvegssveitarfélögum um land allt.

Þróunin í sjávarútvegi hefur um langt árabil falið í sér fækkun hefðbundinna starfa í veiðum og vinnslu, á meðan ný störf, meðal annars á vegum ríkisins, hafa að stórum hluta safnast saman á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hefur leitt til versnandi stöðu margra sjávarútvegssamfélaga og aukins óöryggis meðal íbúa. Til að bregðast við þeim breytingum sem hækkun veiðigjalda kann að valda er nauðsynlegt að greina hugsanleg áhrif ásamt því að innleiða breytingar í skrefum.

Vakin er athygli á því að umsagnarfrestur við frumvarpið er til og með mánudagsins 26. maí nk.

Hér má nálgast kynningu KPMG og samtakanna frá því á fundinum. Athygli er vakin á því að um er að ræða drög að niðurstöðum greiningar og umsagnar en ekki lokaafurð.

Drög að greiningu KPMG

Drög að umsögn samtakanna

Skortur á skilningi á mikilvægi sjávarútvegs fyrir byggðafestu og stöðugleika

Samtök sjávarútvegssveitarfélaga lýsa yfir eindreginni andstöðu við tillögu ríkisstjórnarinnar um hækkun veiðigjalda enda getur ríkisstjórnin ekki sýnt fram á áhrif hækkunar á sveitarfélög.

Umrædd breyting getur haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarútvegssveitarfélög sem reiða sig á greinina til atvinnu og tekjuöflunar. Þrátt fyrir þessa óvissu fyrir sveitarfélög hafa engin gögn verið lögð fram um áhrif tillögunnar á landsbyggðina né einstök sveitarfélög sem er með öllu óásættanlegt. Er þetta einnig í andstöðu við 129. gr. sveitarstjórnarlaga sem kveður á um að fara eigi fram sérstakt mat á áhrifum lagabreytinga á fjárhag sveitarfélaga.

Við teljum þessa tillögu bera vott um skort á skilningi á mikilvægi sjávarútvegs fyrir byggðafestu og stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Hækkun veiðigjalda að þessu marki getur ekki aðeins haft mikil áhrif á rekstrarforsendur fyrirtækja og samspil veiða og vinnslu, heldur einnig á fjölda samfélaga vítt og breitt um landið.

Samtökin skora á ríkisstjórnina að staldra við og hefja gagnsætt samtal við hagaðila um sanngjarna og rökstudda nálgun á grundvelli greininga á áhrifum á ekki eingöngu fyrirtæki heldur einnig sjávarútvegssveitarfélög. Í framhaldinu verði lögð fram endurskoðuð tillaga byggð á samtölum og greiningum.

Samtökin gera líka athugasemdir við þann stutta umsagnarfrest sem veittur var, þ.e. 10 dagar, sérstaklega í ljósi þess að engin greiningargögn eru til staðar. Ómögulegt er fyrir sveitarfélög að greina áhrif og halda sveitarstjórnarfundi innan þess tímaramma til að senda inn greinargóða umsögn. Því gera samtökin skýlausa kröfu að umsagnarfrestur verði lengdur til að gefa öllum sveitarfélögum tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.