Ályktanir aðalfundar um lagareldi og 5,3% kerfið

Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, sem haldinn var 7. október, samþykkti samhljóða tvær ályktanir um mikilvæg hagsmunamál sjávarútvegssveitarfélaga. Annars vegar er kallað eftir því að lokið verði án frekari tafa við nýja heildstæða lagaumgjörð um lagareldi og hins vegar lýst þungum áhyggjum af breytingum og áformum varðandi ráðstöfun aflaheimilda 5,3% kerfisins.

Í ályktun um lagareldi er lögð áhersla á skýrt og fyrirsjáanlegt regluverk sem styðji við ábyrga uppbyggingu og verðmætasköpun. Sérstök áhersla er lögð á að nærsamfélög, sem bera kostnað af innviðum og þjónustu, njóti sanngjarnrar hlutdeildar í þeim verðmætum sem starfsemin skapar og að sveitarfélög hafi raunverulega aðkomu að stefnumótun og ákvörðunum um þróun greinarinnar.

Í ályktun um 5,3% kerfið er lögð áhersla á að aflaheimildir kerfisins styðji atvinnu og byggð, meðal annars með staðbundinni verðmætasköpun og heilsársstörfum. Sveitarfélögin lýsa þungum áhyggjum af skerðingum á línuívilnun og rækju- og skelbótum og kalla eftir því að breytingar á kerfinu verði unnar í nánu samráði við sveitarfélögin.

Ályktun um lagareldi

„Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga hvetur ríkisstjórn og Alþingi til að ljúka án frekari tafa vinnu við nýja heildstæða lagaumgjörð um lagareldi.

Núverandi lagaumhverfi einkennist af óvissu sem getur hamlað fjárfestingu, dregið úr samkeppnishæfni greinarinnar og tafið mikilvæga atvinnu- og byggðaþróun.

Á síðasta löggjafarþingi var lagt fram frumvarp til laga um lagareldi sem byggði á umfangsmikilli vinnu stjórnvalda, Alþingis, sveitarfélaga, atvinnulífs og annarra hagaðila. Mikilvægt er að þeirri vinnu verði fylgt eftir og skapaður traustur og fyrirsjáanlegur lagagrundvöllur til framtíðar.

Aðalfundurinn leggur áherslu á að ný lagaumgjörð:

  • styðji við ábyrga uppbyggingu og verðmætasköpun í lagareldi,
  • skapi skýrar og fyrirsjáanlegar leikreglur fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila,
  • feli ekki í sér gjöld eða kvaðir sem hamla nauðsynlegri fjárfestingu og uppbyggingu,
  • tryggi að nærsamfélög sem bera kostnað af innviðum og þjónustu njóti sanngjarnrar hlutdeildar í þeim verðmætum sem starfsemin skapar,
  • byggist á bestu fáanlegu þekkingu, vöktun og mati á raunverulegum áhrifum starfseminnar, og
  • tryggi sveitarfélögum raunverulega aðkomu að stefnumótun og ákvörðunum sem varða þróun greinarinnar.

Aðalfundurinn telur það sameiginlegt hagsmunamál ríkis, sveitarfélaga, atvinnulífs og íbúa að skýr og traust lagaumgjörð um lagareldi verði sett hið fyrsta þannig að greinin geti áfram þróast með ábyrgum hætti, með umhverfisvernd að leiðarljósi og til hagsbóta fyrir þau samfélög sem á henni byggja.“ [Sjávarútve…nktar.docx | Word]

Ályktun um 5,3% kerfið

„Aflaheimildir 5,3% kerfisins eiga að styðja atvinnu og byggð með áherslu á staðbundna verðmætasköpun, fjölbreytni í útgerð og vinnslu og heilsársstörf.

Sveitarfélögin lýsa þungum áhyggjum af breytingum og áformum innviðaráðherra, einkum skerðingum á línuívilnun og rækju- og skelbótum, sem veikja atvinnugrundvöll og skerða tekjur sveitarfélaga og hafna.

Sveitarfélögin skora á ráðherra að endurskoða breytingarnar og áformin með hliðsjón af framangreindum markmiðum og vinna að frekari breytingum á ráðstöfun 5,3% heimildanna í nánu samráði við sveitarfélögin.“

Ný stjórn kjörin á aðalfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga var haldinn 7. október 2026 á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum voru meðal annars flutt skýrsla stjórnar og ávarp atvinnuvegaráðherra, ársreikningar samþykktir, starfs- og fjárhagsáætlun afgreidd og stjórn samtakanna kjörin til næstu tveggja ára.

Íris Róbertsdóttir endurkjörin formaður

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, var endurkjörin formaður samtakanna. Með henni í aðalstjórn voru kjörin Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir frá Dalvíkurbyggð, Gerður Björk Sveinsdóttir frá Vesturbyggð, Heimir Örn Árnason frá Akureyrarbæ og Ragnar Sigurðsson frá Fjarðabyggð.

Í varastjórn voru kjörin Alexandra Jóhannesdóttir frá Suðurnesjabæ, Gylfi Ólafsson frá Ísafjarðarbæ og Hjalti Þór Vignisson frá Sveitarfélaginu Hornafirði. Tillagan um skipan stjórnar og varastjórnar var samþykkt samhljóða.

Umfangsmikil hagsmunagæsla

Í skýrslu stjórnar fór Íris Róbertsdóttir yfir umfangsmikla hagsmunagæslu samtakanna á liðnu tímabili. Þar bar hæst vinnu vegna hækkunar veiðigjalda, en samtökin lögðu meðal annars áherslu á betra samráð, vandaðri gögn og mat á áhrifum breytinganna á sjávarútvegssveitarfélög. Meðal annarra áherslumála samtakanna hafa verið fyrirsjáanleiki við úthlutun byggðakvóta og strandveiðar, endurskoðun gjaldskrárákvæða hafnalaga vegna lagareldis, hófleg skattlagning sjávarútvegs og fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga til uppbyggingar innviða.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, ávarpaði fundinn og ræddi meðal annars veiðigjöld, lagareldi, þörungarækt og mikilvægi samráðs við sveitarfélögin. Hún sagði rödd samtakanna hafa haft raunveruleg áhrif við afgreiðslu veiðigjaldamálsins og óskaði eftir góðu samstarfi við sveitarfélögin við fyrirhugað mat á áhrifum gjaldanna.

Ársreikningar samtakanna fyrir árin 2024 og 2025 voru samþykktir samhljóða. Fundurinn samþykkti jafnframt starfs- og fjárhagsáætlun, hækkun aðildargjalda og óbreytt stjórnarlaun.

Aðalfundurinn samþykkti að lokum samhljóða tvær ályktanir. Önnur þeirra fjallar um nauðsyn nýrrar heildstæðrar lagaumgjarðar um lagareldi og hin um ráðstöfun aflaheimilda 5,3% kerfisins og áhrif fyrirhugaðra breytinga á sjávarbyggðir.