Á stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:
„Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir furðu sinni á tregðu stjórnvalda til að veita aðgang að lykilgögnum sem varpa ljósi á raunveruleg áhrif frumvarps til laga um breytingu á veiðigjöldum en beiðni um upplýsingar frá Skattinum liggur fyrir frá samtökunum í atvinnuvegaráðuneytinu. Það er allra hagur að gögn og greiningar til að undirbyggja mat á áhrifum frumvarpsins á afkomu fyrirtækja og sveitarfélög landsins séu aðgengileg og að vandað sé til allra verka. Það er því bagalegt að samtökin hafi þurft að leita til milliliða til að nálgast gögn svo hægt sé að uppfæra greiningar á áhrifamati.
Fyrir liggur að grunnútreikningar Skattsins á hækkun veiðileyfagjalds leiða í ljós að fyrri útreikningar atvinnuvegaráðuneytisins á hækkun veiðileyfagjalds hafa verið verulega vanáætlaðir. Nær öll hækkunin leggst á landsbyggðirnar og með enn meiri þunga en áður var ætlað. Ekki aðeins er um að ræða hækkun á stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins heldur er ljóst að hækkunin nær til hundruða annarra fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi, einyrkja sem lítilla fjölskyldufyrirtækja. Verulegar líkur eru á að hækkun veiðigjalds leiði til aukinnar samþjöppunar fyrirtækja í sjávarútvegi og að starfsemi fiskvinnsla leggist af í ákveðnum byggðarlögum. Nauðsynlegt er því að gögn Skattsins verði gerð aðgengileg þannig að þingmenn og hagaðilar eins og sveitarfélög landsins, sem mörg hver byggja afkomu sína að verulegu leyti á íslenskum sjávarútvegi, geti metið bein og óbein áhrif frumvarpsins, s.s. á útsvarstekjur, tekjur vegna umsvifa í starfsemi hafna, stoðgreinar og nýsköpun.
Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir ánægju sinni með að atvinnuveganefnd Alþingis hafi unnið að jákvæðum breytingum á frumvarpinu sem varða hækkun svokallaðs frítekjumarks en ljóst er að vinna þarf málið betur á grundvelli nýrra gagna, uppfæra greiningar og vinna víðtækara áhrifamat, m.a. fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög landsins í samræmi við sveitarstjórnarlög. Við blasir að nauðsynlegt er að taka frumvarpið aftur til meðferðar og bæta úr þeim annmörkum sem í ljós hafa komið. Samtökin lýsa enn yfir vilja sínum til að hækkun veiðileyfagjalda verði innleidd í þrepum.
Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga hvetur Alþingi og ríkisstjórn Íslands til að standa með almannahagsmunum og taka tillit til málefnalegra athugasemda samtakanna.“
Stjórn samtakanna fól KPMG að uppfæra ákveðin atriði í fyrri greiningu þeirra fyrir samtökin í samræmi við breytingartillögur meiri hluta atvinnuveganefndar Alþingis. Nálgast má uppfærð gögn KPMG hér.