Á opnum fundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga í morgun var fjallað um fyrirhugaðar lagabreytingar vegna lagareldis, stöðu byggða og uppbyggingu lykilinnviða víða um land. Fundurinn sýndi glögglega mikilvægi þess að samræma hagsmuni atvinnulífs, sveitarfélaga og umhverfis.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, kynnti væntanlegt lagareldisumvarp þar sem lögð er áhersla á að skýra regluverk, draga úr óvissu og sameina leyfisveitingar í eitt rekstrarleyfi til að auka skilvirkni og bæta umhverfisvernd.
Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnamála hjá Vegagerðinni, benti á mikla fjárfestingaþörf hafna meðal annars vegna skemmtiferðaskipa, fiskeldis og aukinna öryggiskrafna, auk þess sem margar hafnir glíma við fjárhagslega þrengingu.
Sigurður Árnason, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, fór yfir stöðu byggða og undirstrikaði að einhæft atvinnulíf auki brothættni og að stuðningskerfi þurfi að taka mið af raunverulegri stöðu einstakra byggðarlaga.
Í pallborðsumræðum lýstu fulltrúar sveitarfélaga áhyggjum af hækkandi gjöldum, flutningskostnaði og ófyrirséðum breytingum sem gætu haft áhrif á tekjur og atvinnu í sjávarbyggðum. Einnig komu fram góðar ábendingar um mikilvægi hafnabótasjóðs og nauðsyn þess að hækka framlög til sjóðsins.




