Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga var haldinn 7. október 2026 á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum voru meðal annars flutt skýrsla stjórnar og ávarp atvinnuvegaráðherra, ársreikningar samþykktir, starfs- og fjárhagsáætlun afgreidd og stjórn samtakanna kjörin til næstu tveggja ára.
Íris Róbertsdóttir endurkjörin formaður
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, var endurkjörin formaður samtakanna. Með henni í aðalstjórn voru kjörin Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir frá Dalvíkurbyggð, Gerður Björk Sveinsdóttir frá Vesturbyggð, Heimir Örn Árnason frá Akureyrarbæ og Ragnar Sigurðsson frá Fjarðabyggð.
Í varastjórn voru kjörin Alexandra Jóhannesdóttir frá Suðurnesjabæ, Gylfi Ólafsson frá Ísafjarðarbæ og Hjalti Þór Vignisson frá Sveitarfélaginu Hornafirði. Tillagan um skipan stjórnar og varastjórnar var samþykkt samhljóða.
Umfangsmikil hagsmunagæsla
Í skýrslu stjórnar fór Íris Róbertsdóttir yfir umfangsmikla hagsmunagæslu samtakanna á liðnu tímabili. Þar bar hæst vinnu vegna hækkunar veiðigjalda, en samtökin lögðu meðal annars áherslu á betra samráð, vandaðri gögn og mat á áhrifum breytinganna á sjávarútvegssveitarfélög. Meðal annarra áherslumála samtakanna hafa verið fyrirsjáanleiki við úthlutun byggðakvóta og strandveiðar, endurskoðun gjaldskrárákvæða hafnalaga vegna lagareldis, hófleg skattlagning sjávarútvegs og fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga til uppbyggingar innviða.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, ávarpaði fundinn og ræddi meðal annars veiðigjöld, lagareldi, þörungarækt og mikilvægi samráðs við sveitarfélögin. Hún sagði rödd samtakanna hafa haft raunveruleg áhrif við afgreiðslu veiðigjaldamálsins og óskaði eftir góðu samstarfi við sveitarfélögin við fyrirhugað mat á áhrifum gjaldanna.
Ársreikningar samtakanna fyrir árin 2024 og 2025 voru samþykktir samhljóða. Fundurinn samþykkti jafnframt starfs- og fjárhagsáætlun, hækkun aðildargjalda og óbreytt stjórnarlaun.
Aðalfundurinn samþykkti að lokum samhljóða tvær ályktanir. Önnur þeirra fjallar um nauðsyn nýrrar heildstæðrar lagaumgjarðar um lagareldi og hin um ráðstöfun aflaheimilda 5,3% kerfisins og áhrif fyrirhugaðra breytinga á sjávarbyggðir.




