Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga skilaði inn til atvinnuveganefndar Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald nr. 145/2018. Með frumvarpinu er lagt til að hækka veiðigjöld.
Stjórn samtakanna lagði til að farið sé í vandaða greiningu á áhrifum hækkunar veiðigjalda á byggðarlög og minni skref verði stigin við innleiðingu hækkunar veiðigjalda.
Með umsögn samtakanna fylgdi greining KPMG ásamt kynningu á umsögn samtakanna.
Hér er hægt að nálgast öll gögnin.