Fundur með þingmönnum um áhrif væntanlegrar hækkunar veiðigjalda

Síðasta föstudag héldu Samtök sjávarútvegssveitarfélaga fund með þingmönnum vegna fyrirhugaðrar hækkunar veiðigjalda. Á fundinum voru kynnt drög að umsögn samtakanna um frumvarpið, sem og drög að greiningu KPMG á áhrifum þess á sveitarfélög sem reiða sig að miklu leyti á sjávarútveg.

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki við að gæta staðbundinna almannahagsmuna og tryggja að ákvarðanir ríkisvaldsins taki mið af áhrifum á íbúa, atvinnulíf og byggðaþróun. Samtökin lögðu á fundinum áherslu á að með hækkun á veiðigjaldi sé enn hert á kröfunni um hagræðingu í greininni og að slíkar breytingar geti haft veruleg áhrif á atvinnu og afkomu í sjávarútvegssveitarfélögum um land allt.

Þróunin í sjávarútvegi hefur um langt árabil falið í sér fækkun hefðbundinna starfa í veiðum og vinnslu, á meðan ný störf, meðal annars á vegum ríkisins, hafa að stórum hluta safnast saman á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hefur leitt til versnandi stöðu margra sjávarútvegssamfélaga og aukins óöryggis meðal íbúa. Til að bregðast við þeim breytingum sem hækkun veiðigjalda kann að valda er nauðsynlegt að greina hugsanleg áhrif ásamt því að innleiða breytingar í skrefum.

Vakin er athygli á því að umsagnarfrestur við frumvarpið er til og með mánudagsins 26. maí nk.

Hér má nálgast kynningu KPMG og samtakanna frá því á fundinum. Athygli er vakin á því að um er að ræða drög að niðurstöðum greiningar og umsagnar en ekki lokaafurð.

Drög að greiningu KPMG

Drög að umsögn samtakanna