Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga samþykkti vorið 2019 að láta gera úttekt eða greiningu á áhrifum minnkandi nýtingar línuívilnunar á atvinnu- og íbúaþróun í þeim sveitarfélögum þar sem línuívilnun hefur verið nýtt hvað mest.
Markmið úttektar var að draga fram staðreyndir um gildi línuívilnunar fyrir þessi samfélög á undanförnum árum og möguleg áhrif enn frekari skerðinga á heimildum vegna hennar.
Úttektin var unnin af RR ráðgjöf og var að mestu unnin á grundvelli gagna frá Fiskistofu. Skýrsla þessi verður meðal umfjöllunarefna á Sjávarútvegsfundi samtakanna sem haldinn verður 2. október.