Sjávarútvegsfundur er almennur kynningar- og fræðslufundur fyrir starfsmenn, stjórnendur og bæjarfulltrúa aðildarsveitarfélaga um tiltekin málefni sem stjórnin ákveður.
Fjarfundur 8. desember 2023 kl. 9:00-11:00
Er stefnumótun vegna nýtingar sjávarauðlindarinnar á réttri leið fyrir sjávarútvegssveitarfélög?
Dagskrá fundarins:
09:00 | Setning fundar Jón Björn Hákonarson, formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga setur fundinn. |
09:05 | Auðlindin okkar, Matvælaráðuneytið Rebekka Hilmarsdóttir, sérfræðingur hjá matvælaráðuneyti fer yfir helstu þætti úr vinnu Auðlindarinnar okkar og drög að sjávarútvegsstefnu og frumvarpi til laga um sjávarútveg. |
09:20 | Sjónarmið frá sjávarútvegsgrein um Auðlindina okkar Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, fer yfir sjónarmið greinarinnar vegna Auðlindarinnar okkar. |
Fyrirspurnir og umræður | |
10:00 | Stefnumótun í lagareldi til 2024 Hjalti Jón Guðmundsson, sérfræðingur hjá matvælaráðuneyti, fer yfir stöðu stefnumótunar í lagareldi eftir að samráðsferli í samráðsgátt er lokið. |
10:20 | Sjónarmið fiskeldisfyrirtækja vegna stefnumótunar í lagareldi Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austurlands, fer yfir sjónarmið fiskeldisfyrirtækis vegna stefnumótunar í lagareldi. |
Fyrirspurnir og umræður | |
11:00 | Fundi slitið |
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn hér. Í kjölfarið mun fundarboð birtast í dagatalið hjá ykkur.