Samtök sjávarútvegssveitarfélaga boða til Sjávarútvegsfundar fyrir aðildarsveitarfélög, ráðherra, þingmenn, aðila innan sjávarútvegs og aðra áhugasama undir yfirskriftinni: Fagur fagur fiskur í „sjó.“ Breytt umhverfi í sjávarútvegi og áhrif á sjávarbyggðir
Fundurinn fer fram miðvikudaginn 4. mars kl. 9:30-11:30 og fer fram á Drift, Strandgötu 1, Akureyri.
9:00 Húsið opnar með morgunverðarveitingum
9:30 Fundarsetning, Íris Róbertsdóttir, formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
9:40 Frumvarp um lagareldi, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra
10:00 Erindi um sjávarútveg og hafnir
10:20 Sjávarútvegur og byggðafesta, Sigurður Árnason, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar
10:35 Pallborðsumræður og spurningar úr sal
11:20 Samantekt og fundarslit, Sigfús Ingi Sigfússon, varaformaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Vakin er athygli á því að þriðjudaginn 3. mars býðst fulltrúum aðildarsveitarfélaga að taka þátt í fræðsluferð kl. 15:30. Að fræðsluferð lokinni er í boði að slást í hóp með stjórn samtakanna í kvöldverð á Rub23.
Dagskrá þriðjudagsins fyrir fulltrúa aðildarsveitarfélaga
15:30 Fræðsluferð til Samherja á Dalvík. Boðið verður upp á rútu frá Akureyri og til baka
18:00 Frjáls tími
20:00 Kvöldverður á Rub23. Þátttakendur greiða sjálfir fyrir mat og drykk.
Nauðsynlegt er að skrá sig á bæði á sjávarútvegsfundinn sem og fræðsluferð og kvöldverð á þriðjudegi. Skráning fer fram hér: