Strandbúnaður 2019

Skráning er nú hafin á Strandbúnað 2019, ráðstefnu um fiskeldi, skeldýra- og þörungarækt. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík, 21.-22. mars. Ef um er að ræða hópskráningu, 5 eða fleiri er hægt að fylla út exelskjal og senda á Þórunn Dögg Harðardóttir (thorunn@athygliradstefnur.is)

Skráning

Þörungamálstofa
Guðrún Hallgrímsdóttir hjá Hyndlu ehf. er ein af fyrirlesurum í málstofunni ,,Þörungarækt á Íslandi – Tækifæri í framtíðinni eða iðnaður dagsins í dag?“  Hún flytur erindið ,,Inniræktun stórþörunga í borholusjó“. Markmið Hyndlu er að þróa sjálfbæra og arðbæra framleiðslu á eftirsóttum innlendum stór-þörungum ræktuðum í borholusjó. Gerðar hafa verið tilraunir með  alíslenskan  rauðþörung, klóblöðku, af tegundinni Schizymenia. Hún vex neðarlega í fjöru þar sem erfitt getur verið að tína hana. Klóblaðka er áhugaverð sökum bragðgæða en einnig vegna innihalds lífvirkra efna. Sagt verður frá svörun þörungsins við ljósi og hita, vaxtarhraða og fjölgun í kerjum svo og næstu skrefum.

Dagskrá